Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2004-02-25

Fortune velur Alcoa eitt virtasta fyrirtæki Bandaríkjanna

Hið þekkta bandaríska viðskiptatímarit Fortune Magazine hefur útnefnt álfyrirtækið Alcoa sem eitt virtasta fyrirtæki Bandaríkjanna.

Útnefningin byggir á viðamikilli skoðanakönnun meðal um 10.000 bandarískra stjórnenda og sérfræðinga sem beðnir voru um að gefa 592 fyrirtækjum í 64 atvinnugreinum einkunn út frá frammistöðu þeirra á átta mismunandi sviðum. Niðurstöðurnar verða birtar í næsta mánuði í skýrslu sem tímaritið gefur út árlega og fjallar um orðspor og ímynd bandarískra fyrirtækja.

Alcoa var útnefnt virtasta fyrirtækið í flokki málmfyrirtækja og náði þar bestu niðurstöðu á öllum átta sviðunum sem eru mannauður, geta til nýsköpunar, meðferð fjármuna, samfélagsleg ábyrgð, stjórnun, fjárhagsleg staða, gildi fyrirtækis sem langtímafjárfestingar, og gæði vöru og þjónustu. Þetta er níunda árið í röð sem Fortune útnefnir Alcoa virtasta málmfyrirtækið. Aðeins eitt af öllum 592 fyrirtækjunum fékk hærri einkunn en Alcoa fyrir frammistöðu á sviði samfélagslegrar ábyrgðar.

Alcoa er fremsti framleiðandi heims á hrááli, unnum álvörum og súráli. Fyrirtækið framleiðir málma sem notað er í margs konar iðnaði, s.s. við smíði samgöngutækja, í umbúðaverksmiðjum og byggingariðnaði. Einnig framleiðir fyrirtækið vínylveggplötur, hluti sem notaðir eru í rafkerfum bifreiða og ýmsan neytendavarning, s.s. Reynolds Wrap® álumbúðapappír, Alcoa® hjól og Baco® álpappír. Hjá fyrirtækinu starfa 127.000 manns í 40 löndum. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsetrinu www.alcoa.com

 
 




Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina