Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2005-09-16

Stefnt að fjölbreyttri framleiðslu hjá Alcoa Fjarðaáli

FRÉTTATILKYNNING: Fjölbreytt álframleiðsla mun fara fram í álveri Alcoa Fjarðaáls sem nú er verið að reisa í Fjarðabyggð og áætlað er að hefji starfsemi árið 2007. Fyrirtækið mun í senn framleiða ál fyrir almenna iðnframleiðslu, hágæðaál og sérstakar álblöndur sem notaðar eru í bílaiðnaði. Einnig verða þar steyptir álvírar sem m.a. eru nýttir við framleiðslu háspennustrengja.

Nýlega var tekin ákvörðun um hvernig framleiðsla álversins mun skiptast milli ólíkra vöruflokka en ál frá Alcoa Fjarðaáli verður flutt út á markaði í bæði Evrópu og Bandaríkjunum.
 
Búnaður og framleiðsluferli álversins verða hönnuð með það fyrir augum að auðvelt verði að breyta framleiðslunni og laga hana að þeim aðstæðum sem ríkja á mörkuðum hverju sinni. Auk álhleifa og álbarra, sem eru hefðbundin meginframleiðsluvara álvera, mun Alcoa Fjarðaál einnig geta framleitt allt að 90 þúsund tonnum af álvír árlega í fullkominni vírsteypu sem verður sú fyrsta hér á landi.
 
„Við erum mjög ánægð með að taka þátt í frekari þróun álframleiðslu á Íslandi um leið og við gegnum mikilvægu hlutverki í vexti Alcoa á heimsvísu,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls.
 
Áformað er að álver Alcoa Fjarðaáls geti árlega framleitt allt að 346 þúsund tonnum af áli. Fullkomnasta tækni sem völ er á verður nýtt við framleiðsluna til að hámarka framleiðni og til að halda áhrifum á umhverfið í lágmarki. Alls munu tæplega 400 manns starfa hjá fyrirtækinu með fjölbreyttan bakgrunn og menntun. Fyrirtækið leggur áherslu á öryggismál og heilsuvernd starfsmanna, að bjóða starfsmönnum vandaða þjálfun og símenntun, og að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi.


Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina