 |
 |
 |
 |
 |
 |
2005-08-29

Stuðningssjóður Alcoa styrkir nemendaskipti milli Íslands og Bandaríkjanna

Sjóður á vegum Alcoa hefur ákveðið að verja 300.000 USD, jafnvirði tæplega tuttugu milljóna króna, til að styrkja nemendaskipti á háskólastigi milli Íslands og Bandaríkjanna í því skyni að efla samskipti þjóðanna á sviði vísinda og fræða. Framlagið er liður í viðleitni Stuðningssjóðs Alcoa (Alcoa Foundation) að stuðla að auknum lífsgæðum fólks í samfélögum þar sem Alcoa starfar.

Þetta er í annað skipti sem Stuðningssjóður Alcoa veitir styrki vegna starfsemi Alcoa hér á landi en fyrr á þessu ári veitti sjóðurinn Heilbrigðisstofnun Austurlands fimm milljóna króna styrk til kaupa á fullkomnum myndvinnslubúnaði fyrir röntgentæki. Stofnun Leifs Eiríkssonar (The Leifur Eiríksson Foundation), sem komið var á fót árið 2001 og styður við bakið á íslenskum og bandarískum háskólanemum, mun annast vörslu fjárins og afgreiða styrkumsóknir. „Samhliða byggingu álvers í Fjarðabyggð mun Stuðningssjóður Alcoa styðja við bakið á margvíslegum samfélagslegum verkefnum hérlendis,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls. „Með því að kosta nemendaskipti milli Íslands og Bandaríkjanna skapar sjóðurinn aukna möguleika fyrir háskólanema frá þessum tveimur löndum til að deila þekkingu og stuðlar að eflingu rannsókna og fræðastarfs beggja vegna Atlantshafsins.“ „Við erum mjög þakklát Stuðningssjóði Alcoa fyrir að stuðla með þessum hætti að auknum samskiptum íslenskra og bandarískra háskólanema,“ segir Steingrímur Hermannsson, stjórnarformaður Stofnunar Leifs Eiríkssonar og fyrrverandi forsætisráðherra. Stofnun Leifs Eiríkssonar var stofnuð af ríkisstjórn Íslands, Seðlabanka Íslands og Virginíuháskóla í Bandaríkjunum í tilefni af því að þúsund ár voru liðin frá siglingum norrænna manna til Vesturheims. Stofnunin mun hafa umsjón með veitingu styrkja til nemendaskipta á vegum Stuðningssjóðs Alcoa og eru veittir styrkir til að standa straum af skólagjöldum og uppihaldi. Allir íslenskir og bandarískir háskólanemar í framhaldsnámi geta sótt um og verður fyrstu styrkjunum úthlutað vegna náms sem hefst á næsta skólaári. Sótt er um á nýrri heimasíðu Stofnunar Leifs Eiríkssonar (www.leifureirikssonfoundation.org). Um Stuðningssjóð Alcoa: Stuðningssjóður Alcoa var stofnaður árið 1952 og námu styrkir sjóðsins á síðasta ári alls 17 milljónum bandaríkjadollara, jafnvirði ríflega eins milljarðs króna á núverandi gengi. Lögð er áhersla á að styðja verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærni, öryggis og heilsuverndar barna og fjölskyldna, alþjóðlegrar menntunar og starfshæfni, og samstarfs fyrirtækja og samfélaga. Um Alcoa: Alcoa er fremsti framleiðandi heims á súráli, hrááli og unnum álvörum. Fyrirtækið framleiðir málma sem notaðir eru í margs konar iðnaði, s.s. við smíði samgöngutækja, í umbúðaverksmiðjum og byggingariðnaði. Einnig framleiðir fyrirtækið vínylveggplötur, hluti sem notaðir eru í rafkerfum bifreiða og ýmsan neytendavarning, s.s. Reynolds Wrap® álumbúðapappír, Alcoa® hjól og Baco® álpappír. Hjá fyrirtækinu starfa um 130.000 manns í 43 löndum. Dótturfyrirtæki Alcoa á Íslandi nefnist Alcoa Fjarðaál.

|  |
|
|