Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2003-10-07

Hagnaður af reglulegri starfsemi eykst um 40%milli ára

Hagnaður alþjóðlega álfyrirtækisins Alcoa af reglulegri starfsemi nam alls 283 milljónum bandaríkjadollara, jafnvirði rúmlega 21,5 milljarðs íslenskra króna, á þriðja fjórðungi þessa árs. Það samsvarar um 0,33 dollara á hvern hlut.

Hagnaður alþjóðlega álfyrirtækisins Alcoa af reglulegri starfsemi nam alls 283 milljónum bandaríkjadollara, jafnvirði rúmlega 21,5 milljarðs íslenskra króna, á þriðja fjórðungi þessa árs. Það samsvarar um 0,33 dollara á hvern hlut. Hagnaðurinn var 40% meiri en á sama tímabili í fyrra en þá nam hagnaður af reglulegri starfsemi alls 202 milljónum dollara, jafnvirði tæplega 15,5 milljarða íslenskra króna. Samanborið við 2. fjórðung þessa árs nam aukningin 24%.

Í heild nam hagnaður fyrirtækisins á þriðja fjórðungi þessa árs 280 milljónum bandaríkjadollara eða um 21,3 milljörðum íslenskra króna. Aukningin nemur 45% miðað við sama tímabil á síðasta ári og 30% miðað við næstliðinn ársfjórðung.

Góðar aðstæður á markaði fyrir Súrál
Rekstrartekjur námu 5,3 milljörðum bandaríkjadollara, sem samsvarar um 404 milljörðum íslenskra króna, og jukust um 3% miðað við þriðja fjórðung ársins 2002. Aðstæður á markaði fyrir súrál eru góðar og hefur sala á því ekki verið betri síðan á fyrsta fjórðungi ársins 2001. Nokkuð dró úr framleiðslu á hrááli, sem að hluta til má rekja til röskunar á starfsemi álvers Alcoa í Sao Luis í Brasilíu, en hærra verð vóg þar upp á móti. Spurn eftir áli á markaði fyrir byggingavörur og stærri samgöngutæki hefur verið að taka við sér en spurn eftir áli til nota í bílaiðnaði í Evrópu og Bandaríkjunum hefur verið veik eins og venja er á þessum árstíma.

Sparnaðaraðgerðir skila árangri
Hagnaður á þriðja fjórðungi ársins 2003 nam 20,8% af tekjum og hefur þetta hlutfall ekki verið hærra í tvö ár. Rekstrarkostnaður minnkaði um 12% frá fyrra ársfjórðungi og var einungis 5,7% af tekjum. Fyrirtækinu tókst að spara 23 milljónir dollara í rekstri á tímabilinu, sem samsvarar alls 17,5 milljörðum íslenskra króna, og stefnir að því að hafa náð rekstrarkostnaði niður um alls 1 milljarð dollara fyrir lok ársins. 

Alcoa hefur minnkað skuldir sínar um nálega 1 milljarð dollara á síðustu 6 mánuðum og er skuldsetningarhlutfall fyrirtækisins (skuldir sem hlutfall af heildarfjármagni) nú 38,8%.

Alcoa er fremsti framleiðandi heims á hrááli, unnum álvörum og súráli. Fyrirtækið framleiðir málma sem notað er í margs konar iðnaði, s.s. við smíði samgöngutækja, í umbúðaverksmiðjum og byggingariðnaði. Einnig framleiðir fyrirtækið vínylveggplötur, hluti sem notaðir eru í rafkerfum bifreiða og ýmsan neytendavarning, s.s. Reynolds Wrap® álumbúðapappír, Alcoa® hjól og Baco® álpappír. Hjá fyrirtækinu starfa 127.000 manns í 40 löndum. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsetrinu www.alcoa.com

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina