Byrjað var að reikna út sjálfbærnivísitölur Dow Jones árið 1999 og var það í fyrsta skipti sem farið var að meta starfsemi fyrirtækja um víða veröld á mælikvarða sjálfbærni. Aðeins 10% af þeim 2.500 fyrirtækjum sem mynda grunn Dow Jones Global hlutabréfavísitalnanna, sem eru hlutabréfavísitölur fyrir fjármálamarkaði í ýmsum löndum og heimshlutum, eru einnig í grunni sjálfbærnivísitalnanna.
„Ég er stoltur af því að Dow Jones skuli áfram telja að Alcoa sé í fararbroddi á sviði sjálfbærni. Það er til marks um að mikilvægir hagsmunahópar telja fyrirtækið og þau gildi sem starfsemi okkar byggir á um víða veröld séu til fyrirmyndar,“ sagði Alain Belda, forstjóri Alcoa, er valið var tilkynnt.
Alcoa var fyrst valið í grunn sjálfbærnivísitalnanna árið 2001. Nú eru yfir 300 fyrirtæki í grunninum sem öll þykja skara fram úr á sviði sjálfbærni.
Í skýrslu sem Alcoa birti fyrr á árinu og fjallar um árangur fyrirtækisins á sviði sjálfbærrar þróunar (2002 Sustainability Report) er fjallað um markmið fyrirtækisins á þessu sviði til ársins 2020. Einnig eru í skýrslunni upplýsingar um hvernig fyrirtækinu hefur gengið að ná þessum markmiðum. Þá er í skýrslunni fjallað um metnaðarfullar áætlanir fyrirtækisins á sviði samfélagsmála, styrki þess til góðgerðarmála og rekstrarárangur. Unnt er að nálgast skýrsluna á vefslóðinni http://www.alcoa.com/global/en/aboutalcoa/sustainability_report.asp
Unnt er að nálgast frekari uppplýsingar um sjálfbærnivísitölur Dow Jones á vefslóðinni http://www.sustainability-index.com
Alcoa er fremsti framleiðandi heims á hrááli, unnum álvörum og súráli. Fyrirtækið framleiðir málma sem notað er í margs konar iðnaði, s.s. við smíði samgöngutækja, í umbúðaverksmiðjum og byggingariðnaði. Einnig framleiðir fyrirtækið vínylveggplötur, hluti sem notaðir eru í rafkerfum bifreiða og ýmsan neytendavarning, s.s. Reynolds Wrap® álumbúðapappír, Alcoa® hjól og Baco® álpappír. Hjá fyrirtækinu starfa 127.000 manns í 40 löndum. Frekari upplýsingar um fyrirtækið má nálgast á vefsetrinu www.alcoa.com