Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2007-01-25

Alcoa tilnefnt eitt af sjálfbærustu fyrirtækjunum í heiminum, þriðja árið í röð

DAVOS, Sviss—(VIÐSKIPTASKEYTI)—Alcoa (NYSE:AA) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði verið tilnefnt eitt af sjálfbærustu fyrirtækjunum í heiminum, þriðja árið í röð. Alcoa var valið meðal helstu fyrirmyndanna í sjálfbærum viðskiptaháttum í hinni árlegu flokkun, Global 100 Most Sustainable Corporations in the World, við athöfn hjá alþjóða efnahagsstofnuninni (WEF) í Davos, Sviss.

Global 100 var hrint af stað árið 2005 af Corporate Knights Inc. í Kanada, sem gefur út eina tímaritið í heiminum um hefðbundna skyldu fyrirtækja. Innovest Strategic Value Advisors Inc., fyrirtæki sérhæft í fjárfestingarannsóknum og –ráðgjöf, safnar og greinir gögn frá 1800 alþjóðlegum fyrirtækjum til að gera listann.
 
„Að vera talin með í Global 100 flokkuninni endurspeglar hversu hart við höfum lagt að okkur og þá áherslu sem við sem fyrirtæki leggjum á sjálfbærni“, sagði Alain Belda, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Alcoa. „Við fellum sjálfbæra hegðun inn í viðskiptahætti okkar, samstarf og skuldbindingu við samfélög. Hjá Alcoa sjáum við sjálfbærni sem framkvæmd samhliða fjárhagslegum árangri, því að skara fram úr umhverfislega og félagslegri ábyrgð, sem gefur hluthöfum okkar langtímaávinning. Að hafa hlotið þessa viðurkenningu eykur við skriðþunga frumkvæðis fyrirtækisins í sjálfbærni“, sagði Belda.
 
Alcoa er stofnaðili að hinu nýlega stofnaða Loftslagsaðgerðafélagi Bandaríkjanna (U.S. Climate Action Partnership), samtökum leiðandi fyrirtækja og stofnana annarra en ríkistofnana sem helga sig samstarfi við ríkisstjórnina til að hægja á, stöðva og á endanum snúa við loftslagsbreytingum. Hægt er að lesa meira um skuldbindingar Alcoa til að takast á við loftslagsbreytingar á www.alcoa.com/climatechange
 
Frekari upplýsingar um Global 100 má finna á www.global100.org
 
Alcoa er leiðandi framleiðandi og stjórnandi á sviði hrááls, unnins áls og súráls, og er virkt á öllum helstu sviðum atvinnugreinarinnar. Alcoa þjónustar markaði á sviði geimferða, bifreiða, umbúða, bygginga og mannvirkjagerðar, flutningaviðskipta og iðnaðar og færir viðskiptavinum sínum hönnun, verkfræði, framleiðslu og annað það sem fyrirtækið er fært um. Til viðbótar við vörur og íhluti úr áli markaðssetur Alcoa einnig neytendavörumerki, þar á meðal Reynolds Wrap® ál- og plastfilmur, Alcoa® felgur og Baco® heimilisfilmur. Meðal annars rekstrar eru lokur, festikerfi, nákvæmnismálmsteypa og rafkerfi fyrir bíla og vörubíla. Hjá fyrirtækinu starfa 124.000 starfsmenn í 44 löndum og það hefur verið tilnefnt eitt af helstu sjálfbæru fyrirtækjunum í heiminum af Alþjóðlegu efnahagsstofnuninni (WEF) í Davos, Sviss. Frekari upplýsingar má finna á www.alcoa.com




Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina