Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2006-02-01

Alcoa hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi siðferði

Alcoa hlaut nýlega viðurkenningu sem eitt af 10 efstu fyrirtækjunum í „Covalence Ethical Ranking" en það er mælikvarði á hvernig alþjóðleg fyrirtæki standa sig hvað siðferði varðar. Alcoa lenti í 8. sæti í heildina en í efsta sæti í námuvinnslu- og málmframleiðslugeiranum.
 

Covalence er fyrirtæki sem var stofnað 2001 og er staðsett í Genf í Sviss en það skoðar siðferðislega frammistöðu fyrirtækja samkvæmt gögnum sem byggja á 45 flokkum mælieininga, þ.á.m. starfsmannastefnu, umhverfisáhrifum, þjóðfélagslegri ábyrgð og alþjóðlegri ímynd. Covalence fylgist náið með 300 alþjóðlegum fyrirtækjum í tíu megingeirum og aflar upplýsinga frá fjölmiðlum, frjálsum félagasamtökum, háskólum og fleiri aðilum. Að baki rannsóknunum stendur Háskólinn í Genf ásamt mörgum frjálsum félagasamtökum.
 
„Þessi viðurkenning staðfestir orðstír Alcoa sem fyrirtækis sem byggir á traustum gildum," segir Alain Belda, forstjóri og stjórnarformaður Alcoa. „Gildin höfum við að leiðarljósi varðandi starfsmenn, hluthafa, viðskiptavini og samfélag. Þessi atriði eru mikilvæg í áframhaldandi velgengni Alcoa."

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina