 |
 |
 |
 |
 |
 |
2005-02-01

Hagsmunir umhverfisins í fyrirrúmi

- eftir Tómas Má Sigurðsson, forstjóra Alcoa Fjarðaáls

Héraðsdómur Reykjavíkur komst nýlega að þeirri niðurstöðu að umhverfisráðherra hafi verið skylt að láta fyrirhugað álver Alcoa Fjarðaáls í Fjarðabyggð sæta mati á umhverfisáhrifum. Í kjölfarið er rétt að rekja nokkrar staðreyndir og útskýra í fáum orðum aðkomu og stöðu Alcoa Fjarðaáls. Áformuð framkvæmd Í nóvember árið 2002 keypti Alcoa hlutafélagið Reyðarál hf. Með í kaupunum fylgdi mat á umhverfisáhrifum vegna 420 þúsund tonna álvers og rafskautaverksmiðju sem Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra höfðu áður samþykkt. Frá upphafi lá fyrir að Alcoa hygðist byggja minna álver með rúmlega 320 þúsund tonna framleiðslugetu. Auk þessa var fallið frá áformum um að byggja rafskautaverksmiðju. Verksmiðjan hefur verið hönnuð með það að markmiði að hún verði í allra fremstu röð hvað varðar umhverfismál. Þannig hefur m.a. verið komið í veg fyrir losun á iðnaðarvatni til sjávar og ákveðið var að endurvinna öll kerbrot erlendis í stað þess að farga þeim hér á landi. Mat á umhverfisáhrifum staðfest Í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum tilkynnti Alcoa stjórnvöldum um breytinguna og skilaði til Skipulagsstofnunar ítarlegri samanburðarskýrslu til að fá úr því skorið hvort gera þyrfti nýtt mat á umhverfisáhrifum eða hvort gamla matið fyrir stærra álver og umfangsmeiri framkvæmd yrði látið gilda. Skipulagsstofnun tók samanburðarskýrsluna til meðferðar og ráðfærði sig við 15 mismunandi stofnanir. Niðurstaða Skipulagsstofnunar var í stuttu máli sú að umræddar breytingar á áformum um byggingu álversins væru ekki þess eðlis að framkvæma þyrfti nýtt mat. Gamla matið stæði því enn, enda mat sérfræðinga að heildaráhrif álvers Alcoa Fjarðaáls yrðu þau sömu eða minni en álvers Reyðaráls samkvæmt upphaflegu mati. Umhverfisráðherra staðfesti síðar þennan úrskurð Skipulagsstofnunar. Minni umhverfisáhrif álvers Alcoa Fjarðaáls Gert var ráð fyrir að útblástur frá upphaflegu álveri Reyðaráls yrði hreinsaður með svokölluðum vothreinsibúnaði. Í því felst að loftborin efni frá álverinu eru fyrst hreinsuð í þurrhreinsibúnaði, þar sem efni í útblæstri eru endurunnin og síðan er útblástur leiddur út í sjó. Hluti útblásturs er samt alltaf loftborinn þannig að áhrifa álversins hefði bæði gætt á sjó og landi. Samþykkt mat á umhverfisáhrifum fyrir Reyðarál gerði ráð fyrir áhrifasvæði á landi sem næði um 2,6 km vestur og 2,6 km austur frá kerskálum. Vegna vothreinsunar var gert ráð fyrir áhrifasvæði á sjó sem var 1,7 km breitt og um 600 metra út frá landi. Ekki er gert ráð fyrir vothreinsibúnaði í fyrirhugðu álveri Alcoa Fjarðaáls. Er það í samræmi við þá stefnu Alcoa að fyrirbyggja alla losun mengandi efna í hafið frá álverum fyrirtækisins, sem eru 27 talsins í fimm heimsálfum. Þó vothreinsun teljist ásættanleg mengunarvörn getur hún falið í sér ákveðna staðbundna áhættu hvað varðar áhrif á lífríki í sjó. Ekki þarf að útskýra mikilvægi þess fyrir okkur Íslendinga að standa vörð um vistkerfi sjávar. Hins vegar er gert ráð fyrir öflugum þurrhreinsibúnaði í álveri Alcoa Fjarðaáls með háum reykháfi, svo öflugum að áhrif á landi eru áætluð þau sömu og gert var ráð fyrir í upphaflegum áætlunum um Reyðarál, jafnvel þó að þar hafi verið gert ráð fyrir vothreinsun. Munurinn er hins vegar sá að álver Alcoa Fjarðaáls skilar engu í sjóinn. Í umræðunni hefur réttilega verið bent á að heildarmagn brennisteins sem fer út í andrúmsloftið verður meira frá álveri Alcoa Fjarðaáls en það hefði orðið frá álveri Reyðaráls miðað við upphaflegar áætlanir. Með þeim mengunarvörnum sem fyrirhugaðar eru í álveri Alcoa Fjarðaáls og dreifingu úr háum reykháfi verður styrkur brennisteins í andrúmslofti umhverfis álverið hins vegar ekki meiri en samkvæmt fyrri áætlunum og umhverfisáhrifin því ekki meiri. Auk þessa verður engu skilað í sjó (fyrri áætlanir gerðu m.a. ráð fyrir að 9.500 tonn af brennisteinsdíoxíði færu í hafið árlega), heildarútblástur flúors (loftkennt og ryk) verður sá sami, útblástur gróðurhúsalofttegunda minni, útblástur allra annarra efna svipaður eða minni, engum kerbrotum verður fargað og áhrifasvæði verksmiðjunnar á landi verður það sama og eldri áætlanir gerðu ráð fyrir. Markmið Alcoa Fjarðaáls er að hanna og reka álver í fremstu röð hvað varðar umhverfismál og í engu verður slakað á kröfum svo það markmið náist. Rétta leiðin farin Við undirbúning að starfsemi álvers Alcoa Fjarðaáls hafa aðstandendur þess í einu og öllu farið eftir þeim leiðum sem lög um mat á umhverfisáhrifum segja til um og fylgt ákvörðunum stjórnvalda. Úrskurður Skipulagsstofnunar byggði á vandaðri og ítarlegri samanburðarskýrslu sérfræðinga. Fimmtán opinberir aðilar sögðu álit sitt á skýrslunni sem Skipulagsstofnun tók tillit til í úrskurði sínum. Þessi úrskurður var síðan staðfestur af umhverfisráðherra og allt þetta ferli var í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

|  |
|
|