Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2004-11-16

Alcoa reisir rafskautaverksmiðju í Norður-NoregiMun framleiða rafskaut fyrir Alcoa Fjarðaál

Alþjóðlega álfyrirtækið Alcoa hyggst reisa rafskautaverksmiðju í bænum Mosjoen í Norður-Noregi og mun hún m.a. framleiða rafskaut fyrir Alcoa Fjarðaál. Verksmiðjan verður sameiginlega í eigu Alcoa og norska málmfyrirtækisins Elkem og nemur heildarfjárfestingin um 314 milljónum bandaríkjadollara, jafnvirði rúmlega 21 milljarðs íslenskra króna. Þar af nemur fjárfesting Alcoa um 284 milljónum dollara eða rúmlega 19 milljörðum króna. Áformað er að verksmiðjan muni hefja framleiðslu í árslok 2007.

Rafskautaverksmiðjan mun bæði framleiða rafskaut fyrir Alcoa Fjarðaál og álver sem Alcoa og Elkem starfrækja nú þegar í Mosjoen. Framkvæmdir við byggingu verksmiðjunnar hefjast um leið og samþykki norskra stjórnvalda liggur fyrir en reiknað er með því að um 80 varanleg störf muni skapast í tengslum við starfsemi hennar.

Alcoa er fremsti framleiðandi heims á súráli, hrááli og unnum álvörum. Fyrirtækið framleiðir málma sem notaðir eru í margs konar iðnaði, s.s. við smíði samgöngutækja, í umbúðaverksmiðjum og byggingariðnaði. Einnig framleiðir fyrirtækið vínylveggplötur, hluti sem notaðir eru í rafkerfum bifreiða og ýmsan neytendavarning, s.s. Reynolds Wrap® álumbúðapappír, Alcoa® álfelgur og Baco® álpappír. Hjá fyrirtækinu starfa um 120.000 manns í 41 landi. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsetrinu www.alcoa.com

Frekari upplýsingar veitir Tómas Sigurðsson í síma 660 5960.

Elkem Aluminum Mosjoen
meira

Alcoa Iceland (Fjarðaál)
meira

Elkem Aluminium Lista
meira

Meira um forskaut: ritgerð um brennslutækni
meira

Hvernig ál er unnið
meira

Brennslugeta Alcoa á heimsvísu
meira

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina