Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2005-02-04

Stuðningssjóður Alcoa styrkir HSA

Sjóður á vegum Alcoa veitti í dag Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) fjárstyrk að upphæð tæplega fimm milljónir króna til kaupa á fullkomnum stafrænum myndvinnslubúnaði. Þetta er í fyrsta skipti sem Stuðningssjóður Alcoa, Alcoa Foundation, styrkir verkefni hér á landi en sjóðurinn hefur það hlutverk að stuðla að auknum lífsgæðum íbúa þeirra samfélaga þar sem Alcoa er með starfsemi. Íslenskt dótturfyrirtæki Alcoa, Alcoa Fjarðaál, annast milligöngu um veitingu styrkja úr sjóðnum til verkefna hérlendis.

Styrkurinn var afhentur við formlega athöfn á Sjúkrahúsi Neskaupstaðar að viðstöddum fulltrúum Fjarðabyggðar, hollvinasamtaka sjúkrahússins og starfsfólki þess. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, afhenti Einari Rafni Haraldssyni, forstöðumanni HSA, styrkféð fyrir hönd Stuðningssjóðs Alcoa. Féð verður nýtt til að fjármagna kaup á stafrænum myndvinnslubúnaði sem mun stytta vinnslu- og greiningartíma röntgenmynda og stórauka þar með öryggi sjúklinga.
 
Stuðningssjóður Alcoa var stofnaður árið 1952 og námu styrkir sjóðsins á síðasta ári alls 17 milljónum bandaríkjadollara, jafnvirði ríflega eins milljarðs íslenskra króna á núverandi gengi. Lögð er áhersla á að styðja verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærni, öryggis og heilsuverndar barna og fjölskyldna, alþjóðlegrar menntunar og starfshæfni, og samstarfs fyrirtækja og samfélaga.
 
Verkefni í nánasta umhverfi dótturfyrirtækja Alcoa njóta að jafnaði forgangs þegar kemur að úthlutun styrkja. Dótturfyrirtækin hafa yfirleitt frumkvæði að því að velja verkefnin og annast milligöngu um veitingu styrkja úr sjóðnum. Fram til ársins 2007 mun Alcoa Fjarðaál leggja áherslu á að styðja við verkefni sem stuðla að uppbyggingu innviða og samfélagsþjónustu á Austurlandi þar sem álver fyrirtækisins mun rísa.
 
Alcoa er fremsti framleiðandi heims á súráli, hrááli og unnum álvörum. Fyrirtækið framleiðir málma sem notaðir eru í margs konar iðnaði, s.s. við smíði samgöngutækja, í umbúðaverksmiðjum og byggingariðnaði. Einnig framleiðir fyrirtækið vínylveggplötur, hluti sem notaðir eru í rafkerfum bifreiða og ýmsan neytendavarning, s.s. Reynolds Wrap® álumbúðapappír, Alcoa® hjól og Baco® álpappír. Hjá fyrirtækinu starfa um 130.000 manns í 43 löndum. Dótturfyrirtæki Alcoa á Íslandi nefnist Alcoa Fjarðaál.

Stuðningssjóður Alcoa


Lesið meira um stuðningssjóð Alcoa (á ensku) og þau verkefni sem sjóðurinn hefur styrkt um allan heim.
meira

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina