 |
 |
 |
 |
 |
 |
2005-08-04

Mótmælendur á byggingarsvæði Alcoa Fjarðaáls

Fyrr í dag fóru 13 erlendir mótmælendur inn á byggingarsvæði álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Þrír þeirra klifruðu upp í háa byggingakrana, en aðrir flökkuðu um vinnusvæðið. Vinna á svæðinu og þær fjölmörgu stóru vinnuvélar sem þar eru, geta skapað hættu ef þar er á ferð fólk sem ekki þekkir til. Til að fyrirbyggja hugsanleg slys eða meiðsl mótmælenda og tryggja öryggi starfsmanna var vinna á svæðinu þess vegna stöðvuð strax.

Lögregla var kölluð til og beðin um aðstoð við að fjarlægja mótmælendurna sem voru í heimildarleysi á svæðinu. Fjarlægði hún strax þá sem voru á jörðu niðri og síðar þá sem voru í byggingarkrönunum. Hófst vinna ekki aftur fyrr en búið var að tryggja að vitað væri um alla óviðkomandi aðila á svæðinu., þannig að þeir sköpuðu ekki frekari hættu fyrir sjálfa sig og aðra. Vill fyrirtækið þakka lögreglunni fyrir að höndla málið á öruggan hátt. Alcoa Fjarðaál fagnar að ekki urðu meiðsl á fólki en harmar að til þessara aðgerða hafi komið og að einstaklingar kjósi að koma málstað sínum á framfæri með þessum hætti. Áhrif á framkvæmdir eru taldar lítilvægar á þessari stundu og ákveðið hefur verið að leggja ekki fram kæru á hendur fólkinu. Alcoa og Alcoa Fjarðaál hafa lagt mikla áherslu á samráð og upplýsandi umræðu og þá jafnt við aðila sem eru fylgjandi sem og þá sem eru á móti framkvæmdunum. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að slíkt samráð og samstarf halda áfram.

|  |
|
|