Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2004-07-14

Nemendur í 10. bekk planta í Alcoaskóginn

Nemendur 10. bekkjar grunnskólans á Reyðarfirði plöntuðu í gær 450 trjáplöntum á svæði sem heimamenn kalla Alcoaskóginn, ofan við byggingarlóð Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði.  Skógræktarfélag Reyðarfjarðar annaðist undirbúning og skipulagningu verksins og Alcoa Fjarðaál lagði til plöntur og annað sem til þurfti.
 
Þessi gróðursetning er framhald af verkefni sem hófst í fyrra, en þá voru 2007 plöntur gróðursettar, sem tákn um að álverið taki til starfa árið 2007.  Núna var ein planta gróðursett fyrir hvern væntan fastan starfsmann við álverið, en stefnt er á að gróðursetja þann fjölda trjáplantna árlega fram til 2007.




Smelltu á myndina til þess að stækka hana.




Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina