13. janúar 2017

Viðburðaríkt og ánægjulegt ár hjá Fjarðaáli

Fjarðaálsfréttir 2016 eru komnar út en þær hafa komið út á hverju hausti síðan árið 2008. Í þeim er að finna skemmtileg viðtöl, áhugavert efni um áliðnaðinn, fréttir af framleiðslu Fjarðaáls og margt fleira. Blaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á Mið-Austurlandi, allt frá Höfn til Vopnafjarðar. 

(Neðst á þessari síðu er að finna hlekki á Fjarðaálsfréttir frá 2009-2015.)

Fjardaalsfrettir_forsida

Í þessu 9. tölublaði er að finna viðtöl við ýmsa aðila sem tengjast álveri Fjarðaáls, t.a.m. Kanadamanninn Luke Tremblay sem dvaldi á Reyðarfirði í eitt ár til að aðstoða í álverinu og tvo starfsmenn Securitas sem hafa einstök áhugamál en annar þeirra safnar Star Wars fylgihlutum og hinn hefur sérhæft sig í einkar frumlegri ljósmyndatöku. Þá koma enn fjölbreyttari áhugamál fram í viðtali við Júlíus Brynjarsson, framkvæmdastjóra skautsmiðju Fjarðaáls, sem m.a. er að gera upp gamlan Volkswagen „rúgbrauð“ og Trabant-bíl.

Heilsugæslu og heilsueflingu hjá Fjarðaáli eru gerð góð skil í blaðinu en tveir hjúkrunarfræðingar og einn iðnaðarheilsufræðingur sjá um að halda starfsfólkinu hraustu, heilbrigðu og á hreyfingu. Heilsueflingarteymið stóð fyrir tíu góðgerðarverkefnum sem fólust í hreyfingu á árinu og öfluðu með því um þremur milljónum í þágu aldraðra á Mið-Austurlandi. Þá stóð teymið fyrir heimsókn Blóðbankans á Austurland í sumar en þetta er í fyrsta skipti sem blóði hefur verið safnað í landshlutanum. Einnig er fjallað um sjálfboðaliðastörf starfsmanna en alls tóku þeir þátt í 21 verkefni og öfluðu með því um 6,5 milljónum til ýmiss konar félagasamtaka á svæðinu.

Tvisvar á ári afhendir Fjarðaál samfélagsstyrki og er ítarlega fjallað um nokkra styrkþega í blaðinu en verkefnin sem fjallað er um gefa góða mynd af þeirri fjölbreyttu menningarstarfsemi sem á sér stað á Mið-Austurlandi. Það kemur í ljós að Alcoa Fjarðaál og Samfélagssjóður Alcoa veittu um 140 milljónir til ýmissa verkefna og félagasamtaka á árinu 2016.

Í blaðinu er fjallað um margt fleira sem ekki verður allt talið upp hér en geta má þess að óvenju mikið af ljósmyndum prýða blaðið, þar á meðal frá heimsókn leikskólabarna í álverið, jólaballi starfsmanna, ofangreindum sjálfboðaliðaverkefnum o.fl.

Blaðinu hefur verið dreift á Austurlandi en einnig má skoða það í pdf-formi (5 MB) með því að smella hér: Download Fjardaalsfrettir_2016_lr.

Eldri eintök af Fjarðaálsfréttum:

Fjardaalsfrettir_2015

Fjarðaálsfréttir 2015 

Download Fjardaalsfrettir_2015_lr

Efnisyfirlit:

4 Starfsemi Alcoa Fjarðaáls 2014    5 Ávarp forstjóra    6 Idolstjarnan í álverinu

9 Álið frá Fjarðaáli snýr aftur heim til Íslands    10 Mikilvægum verkefnum hefur verið hrint í framkvæmd    12 Konan á bak við tjöldin    

14 Konur í álveri – ljósmyndasýning    20 Mikilvægt að leita sér ráða í byrjun    22 Helgi Laxdal vinnur að því að bæta samfélagið

24 Svipmyndir frá árinu    26 Karlar berjast fyrir jöfnum rétti    28 Tóku jógakennarann í Tælandi    29 Mæðgurnar Þórey og Hrafnhildur

31 Velferðarþjónustan hjá Fjarðaáli    32 Heppin ungmenni fengu dvöl í bandarískum þjóðgarði    34 Reykjavíkurmærin sem flutti á Norðfjörð

36 Gífurleg tækifæri fyrir skapandi greinar á Austurlandi    38 Styrkúthlutun    40 Hvergerðingur heldur uppi árlegu stuði á Norðfirði

41 Rauan Meirbekova – áhrif snefilefna við rafgreiningu áls    42 Gætum lagt miklu meira að mörkum

44 Tveir starfsmenn fara í Earthwatch-leiðangur     46 Álnotkun í byggingariðnaði

 

Fjardaalsfrettir_2014

Fjarðaálsfréttir 2014

Download Fjardaalsfrettir_2014_lr

Efnisyfirlit:

3 Ávarp forstjóra Fjarðaáls    4 Starfsemi Fjarðaáls 2013    5 Vel hægt að vinna á vöktum

6 Í námi jafnhliða starfi    7 Pólskt bókasafn lítur dagsins ljós    8 Enn gríðarleg sóknarfæri til staðar

10 Stuðningur fyrir krabbameinssjúka    11 Reynsla sem ég mun aldrei gleyma    12 Styrkúthlutanir Alcoa Fjarðaáls

13 Dægurlagadraumar í Mjóafirði    14 Fjarðaál - í lífi og starfi árið 2014    16 Flúor ekki í því magni að geta skaðað

17 Í Action    18 Álklasinn    19 Vörur sem skila meiru í þjóðarbúið    20 Oddur álbóndi gerir garðinn frægan

22 Jafnrétti mun aukast    23 Spriklandi lax og bleikja í Jökulsá á Dal    24 Alls staðar yndislegt fólk

26 Gunnarshús á Skriðuklaustri 75 ára    27 Fróðleiksmolar - sífellt meira ál í bílum