Alcoa á Íslandi
Yfirlit 
  • Á heimsvísu er Alcoa leiðandi framleiðandi og stjórnandi á sviði hrááls, unnins áls og súráls gegnum virka og vaxandi stöðu sína á öllum helstu sviðum atvinnugreinarinnar.


  • Alcoa þjónustar markaði á sviði geimferða, bifreiða, umbúða, bygginga og mannvirkjagerðar, flutningaviðskipta og iðnaðar og færir viðskiptavinum sínum hönnun, verkfræði, framleiðslu og annað það sem fyrirtækið er fært um.


  • Til viðbótar við framleiðsluvörur og íhluti úr áli, þar með talið flatvalsaðar framleiðsluvörur, harðpressun málmblendis og steypur, markaðssetur Alcoa einnig Alcoa® felgur, festingakerfi, nákvæmnisafsteypur og afsteypur með „lost wax“ aðferðinni og byggingarkerfi.


  • Hjá fyrirtækinu starfa 97.000 starfsmenn í 34 löndum og það hefur verið tilnefnt eitt af helstu sjálfbæru fyrirtækjunum í heiminum af Alþjóðlegu efnahagsstofnuninni (WEF) í Davos, Sviss.


  • Árið 2006 var 10 sinnum öruggara að vinna fyrir Alcoa en það var árið 1991.


  • Alcoa framleiðir mjög varanlega afurð: næstum 70% af öllu áli sem framleitt hefur verið er enn í notkun, sem jafngildir 480 milljónum smálesta (529 milljónum bandarískra tonna) af þeim 690 milljónum smálesta (761 milljón bandarískra tonna) sem framleidd hafa verið í heild síðan 1886.


  • Á hverjum degi, um allan heim:
    • vinnur Alcoa 86.300 tonn af báxíti og 27.300 tonn af kolum
    • hreinsar Alcoa 41.000 tonn af súráli
    • bræðir Alcoa 9.575 tonn af áli
    • endurvinnur Alcoa 2.300 tonn af áli
    • framleiðir Alcoa 8.810 tonn af álvörum
    • setur Alcoa saman leiðsluknippi fyrir 20.400 ökutæki
    • framleiðir Alcoa 96.000 megavattstundir af rafmagni
    • kaupir Alcoa vörur og þjónustu fyrir 27 milljónir bandaríkjadala
Tekjur 2007: $30,7 milljarðar


Eftir liðum
Milljarðar
Flatvalsaðar afurðir
Hrámálmar
Hannaðar afurðir
Þrýstimótaðar og endanlegar vörur
Pakkningar og neytendur
Ál og súrál


Eftir markaði
Milljarðar

Pakkningar og neytendur
Ál og súrál
Iðnaðarvörur og annað
Bifreiðar
Byggingariðnaður og mannvirkjagerð
Geimferðaiðnaður
Vöruflutningar


Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina