alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Innkaupaaðferðir 
Rafrænt uppboð
Rafræn innkaup
Lokað útboð
Innkaupaaðferð A: Rafrænt uppboð

Rafrænt uppboð er aðferð sem notuð er þegar umfang og flækjustig verks býður upp á það, oft verkefni með minna verðmæti. 
 
Viðurkenndir birgjar hjá Alcoa Fjarðaáli fá aðgang að sérstakri vefsíðu sem er vettvangur uppboða. Tímasetning uppboða er auglýst á síðunni og þar er einnig að finna leiðbeiningar fyrir þátttakendur.
 
Uppboðin fara fram á síðunni í rauntíma og taka u.þ.b. hálfa klukkustund. Að þeim loknum gengur Alcoa Fjarðaál frá samningi við lægstbjóðanda eftir að hafa sannreynt að hann uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru. Ef lægstbjóðandi uppfyllir ekki kröfurnar, er gengið til samninga við þann sem býður næstlægst ef hann uppfyllir kröfurnar – og þannig koll af kolli.
 
Þegar samningur er frágenginn og áður en framkvæmd hefst skilar þjónustuaðili inn áætlunum um hvernig hann muni standa að vinnuöryggismálum, heilsu- og umhverfisvernd.
 
Alcoa vaktar að áætlun og árangur standist í framkvæmd og leitar leiða til úrbóta ef þörf er á og hægt er, ef ekki getur það verið tilefni uppsagnar samnings.
 
Fyrirvarar:
Áform um útboð á þjónustu miðast við núgildandi áætlanir fyrirtækisins sem geta tekið breytingum. Alcoa Fjarðaál áskilur sér rétt til að falla frá áformum um útboð á þjónustu, breyta skilgreiningu verkefna, innkaupaaðferðum, viðmiðum við val tilboða og tímasetningum.
 

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina