Ráðningar
Störf í boði Alcoa Fjarðaál mun ráða um 450 konur og karla til margvíslegra starfa í nýju hátæknivæddu álveri í Fjarðabyggð. Fæst okkar hafa starfað áður í álveri en við tökum öll þátt í að móta nýtt fyrirtæki frá grunni. Við ætlum að vinna saman, læra hvert af öðru og fara nýjar leiðir í stjórnun og skipulagi. Allir starfsmenn verða í lykilhlutverki þar sem styrkur fyrirtækisins verður í liðsheildinni. Listi yfir störf og menntunarkröfur Við höfum þegar ráðið yfir 400 manns en leitum enn eftir fólki og munum ráða í nokkra tugi starfa til viðbótar (smellið á starfsheiti til að skoða nánari lýsingu á því) Störf (menntun) Iðnaðarmenn m.a. rafvirkjar, vélvirkjar o.fl. (iðnmenntun) Framleiðslustörf (almenn menntun) Ráðningarferli Við leggjum mjög mikið upp úr því að finna rétt fólk í rétt störf. Rétta fólkið getur haft ólíka menntun, hæfni og reynslu - úr skóla lífsins eða í gegnum uppeldis- eða félagsstörf. Ráðningarferlið er staðlað þannig að allar umsóknir og allir umsækjendur fá sömu meðferð. Hafið samband við Capacent Ráðningarstofan Capacent aðstoðar Fjarðaál við ráðningar og vinnur úr umsóknum. Er áhugasömum því vinsamlega bent á að snúa sér beint til Capacent, hvort sem er með spurningar um störfin eða til að skila af sér umsóknum. Capacent er með skrifstofur í Reykjavík (sími 540 7100) og á Akureyri (sími 461 4440). Frekari upplýsingar um störf og ráðningar Alcoa Fjarðaáls fást hjá Tómasi Oddi Hrafnssyni (tomas.hrafnsson@capacent.is). Hægt er að sækja um öll störfin á capacent.is . Ferilskrá Æskilegt er að umsóknum fylgi ferilskrá þar sem rakin er menntun og reynsla umsækjenda. Sýnishorn af ferilskrám er að finna á vefsvæðinu mannafl.is. Svæðisvinnumiðlun Austurlands aðstoðar jafnframt umsækjendur við að gera ferilskrá. Úrvinnsla umsókna - viðtal hjá Capacent Þegar hafin er úrvinnsla umsókna fyrir tiltekin störf eru umsækjendur boðaðir í viðtal hjá Capacent og þeir jafnframt beðnir að svara stöðluðum spurningum sem eiga að leiða í ljós hvort gildi Alcoa Fjarðaáls og umsækjanda fara saman. Einnig er leitað umsagnar meðmælenda. Næsta skref - viðtal við starfsfólk Alcoa Fjarðaáls Þegar Capacent hefur lagt fyrsta mat á það hvaða umsækjendur koma til greina til starfa hjá Alcoa Fjarðaáli, tekur starfsfólk Alcoa Fjarðaáls við og hittir þá umsækjendur sem eftir standa og býður að lokum þeim sem þykir hæfastur starfið. Hvað tekur ráðningarferlið langan tíma? Ráðningarferlið, frá því starf er auglýst og þangað til það er boðið, getur tekið allt að þrjá mánuði þó reynt sé að stytta tímann hverju sinni eftir því sem unnt er. Þegar búið er að ráða í starfið fá þeir umsækjendur sem eftir standa formlegt bréf þar að lútandi frá Capacent. Almennar kröfur til allra starfsmanna Alcoa Fjarðaál leitar ekki bara að fólki með rétta hæfni og menntun heldur er jafnmikil áhersla lögð á lífsgildi, eiginleika og mannkosti verðandi starfsmanna. Fyrirtækið gerir þær kröfur að allir starfsmenn búi yfir - færni í mannlegum samskiptum - vilja til að starfa í teymum með jafningjum - jákvæðni og virðingu fyrir öðrum - vilja til að leita stöðugra endurbóta - frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum - vilja til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
|
 |




Langar þig að vinna hjá okkur?

 Hjá Fjarðaáli vinna nú yfir 400 manns en við leitum að fleiri starfsmönnum. Ef þig langar að slást í hópinn, hafðu endilega samband við Capacent.
skoða síðu Capacent um laus störf hjá Fjarðaáli
|