 |
 |
|
 |
 |
 |
 |
Um samráðshópinn
Sagan Samráðshóp Landsvirkjunar og Alcoa um sjálfbæra þróun var komið á fót snemma sumars árið 2004. Hér eru raktar ástæður fyrir stofnun samráðshópsins ásamt undirbúningnum.
MARKMIÐ ALCOA :
 MARKMIÐ LANDSVIRKJUNAR:
SJÁLFBÆRNI AÐ LEIÐARLJÓSI Bæði fyrirtækin stefna að því að hafa sjálfbærni að leiðarljósi við uppbyggingu og starfsemi Fjarðaáls og Kárahnjúkavirkjunar. Þörf er á aðferð til að meta framgang mála með þetta langtíma stefnumál í huga. Þess vegna leiddu fyrirtækin saman hesta sína til þess að setja á stofn sjálfbærnihóp Landsvirkjunar og Alcoa SJÁLFBÆRNIHÓPUR LANDSVIRKJUNAR OG ALCOA „Velferð til framtíðar“ er bæklingur sem kynnir stefnumótun íslenskra stjórnvalda um sjálfbæra þróun (hann er til á síðu Umhverfisráðuneytis). Miklar framkvæmdir eru framundan hjá Landsvirkjun og Alcoa. Landsvirkjun stendur að umfangsmestu vatnsaflsvirkjun á Íslandi fram að þessu. Fjarðaál er fyrsta álverið sem Alcoa byggir á sl. 20 árum. Þetta eru stefnumarkandi verkefni fyrir bæði Landsvirkjun og Alcoa og framkvæmdirnar eru samtengdar The objective is to establish a framework to assess the performance of Fjarðaál and Kárahnjúkar against sustainability principles. Undirbúningur yrði aðallega þremur liðum:
- Skilgreining og þróun stefnumarka vegna sjálfbærni, umhverfisvísa og mælikvarða – ábendingar frá hópi hagsmunaaðila.
- Stefnumótun.
- Áframhaldandi mat og skýrslur um framgang mála.
Sjá DÆMIGERÐAN FERIL fyrir greiningu á sjálfbærnivísum (á ensku). DÆMI UM VÍSA Umhverfislegir
- Vísir: Fjöldi tegunda
- Mælikvarði: Breytingar á fjölda
Þjóðfélagslegir
- Vísir: Fjöldi nema eða fólks í þjálfun
- Mælikvarði: Endurnýjun á fjölda nema eða fólks í þjálfun
Efnahagslegir
- Vísir: Efnahagur á svæðinu
- Mælikvarði: Breytingar á tekjumörkum
Sjá einnig SKÝRINGARMYND UM UMHVERFISVÍSA SAMSETNING HÓPSINS Samstarfshópinn skyldi skipaður fulltrúum ýmissa aðila sem ættu hagsmuna að gæta á áhrifasvæði virkjunar og álvers, svo og sérfræðingum í efnahags-, félags- og umhverfismálum. Hópurinn hittist þrisvar á fyrsta áfanga og hlutverk hans skyldi vera að veita ráðgjöf og koma fram með tillögur um hvað þarf nauðsynlega að mæla og meta. Fulltrúar Landsvirkjunar og Alcoa settu saman lista yfir stofnanir, samtök og fyrirtæki sem yrði boðið að skipa fulltrúa í hópinn. KOSTIR VIÐ ÞÁTTTÖKU Þeim samtökum sem boðið var ættu að sjá sér hag í því að hafa fulltrúa í hópnum, m.a. af eftirtöldum ástæðum:
- Til að koma athugasemdum sínum á framfæri
- Aðgangur að upplýsingum um verkefnin, áhrif þeirra og afleiðingar
- Tækifæri til að fylgjast með framgangi verkefnanna
- Tækifæri til að koma áhyggjuefnum sínum á framfæri og mögulega að koma á framfæri tillögum að vísum að þeimsem lúta
- Einstakt t ækifæri til að taka þátt í íslensku verkefni sem gæti hafr alþjóðleg áhrif
- Að kynnast stefnu íslenskra stjórnvalda í sjálfbærnimálum
HELSTU TÍMASETNINGAR Skipulagning verkefnisins skyldi fylgja þessum útlínum:
- Undirbúningsfundir
- Tilnefning ráðgjafa
- Sent út boðsbréf til ráðgjafanefndar
- Fundir með hverjum ráðgjafa fyrir sig
- Júní – stofnfundur ráðgjafanefndar
- Ágúst – annar fundur hóps hagsmunaaðila
- Október – þriðji og síðasti fundur hóps hagsmunaaðila
- Niðurstöður 1. áfanga – um miðjan október
RÁÐNING RÁÐGJAFA Ráða þurfti bæði íslenska og alþjóðlega rágjafa til þess að aðstoða Landsvirkjun og Alcoa við undirbúning og framkvæmd hópverkefnisins. Ráðgjafar þurftu að hafa:
- Reynslu af greiningu alþjóðlegra vísa
- Reynslu af sjálfbærnimálum á Íslandi
- Milligöngu um samvinnu
Eftir umræður við fyrirtæki sem til greina komu var ákveðið að ráða alþjóðlega fyrirtækið ERM sem hefur mikla reynslu af alþjóðlegum vettvangi, íslenska fyrirtækið ALTA og sjálfstætt starfandi ráðgjafa, Auði H. Ingólfsdóttur. FULLTRÚAR SKIPAÐIR Þegar boðsbréf hafði verið sent út til ofangreindra aðila og þeir svarað, var kominn hópur með yfir 40 aðilum, að fulltrúum ERM, ALTA, Landsvirkjunar og Alcoa meðtöldum. Sjá lista yfir þátttakendur hér.
|
 |
|
|
 |