Alcoa á Íslandi
Starfsmannamál 
Yfirlit
Mannauðsstefna og vinnuumhverfi
Ráðningar
Kjaramál
Þjálfun og fræðsla
Mannauðsteymi
Þjálfun og fræðsla

Öll störf í tæknilega fullkomnu nútímaálveri krefjast sérþekkingar. Hvert sem starfið er þarf sá sem því sinnir að auka sérþekkingu sína með fræðilegu námi samhliða markvissri starfsþjálfun. Við ráðningu er leitað að fólki með tiltekna hæfni, menntun og bakgrunn. Ýtarleg starfsþjálfun veitir síðan starfsmönnum þá sérhæfingu sem störf þeirra hjá Alcoa Fjarðaáli krefjast. 
 
Starfsþjálfun í upphafi
Viðamikill hluti af undirbúningi að starfsemi Alcoa Fjarðaáls er að skipuleggja og sjá um þjálfun starfsmanna í upphafi. Þjálfunin tengist  álbræðslunni sjálfri og einnig starfsemi og rekstri fyrirtækisins. Hluti starfsmanna mun hljóta þjálfun erlendis en flestir hér heima. Hluti þjálfunarinnar fer fram á sérstökum námskeiðum og hluti sem starfsþjálfun, en þátttaka í undirbúningi starfseminnar og verkanna sjálfra er einnig veigamikill þáttur í þjálfuninni.
 
Símenntun
Lögð er megináhersla á að starfsmenn ástundi stöðuga símenntun, til að halda við þekkingu sinni og hæfni en einnig til að þróa með sér nýja færni sem gerir þeim kleift að takast á við ný störf og fjölbreyttari verkefni í fyrirtækinu.


Þjálfun og fræðsla

Alcoa Fjarðaál leggur mikla áherslu á menntun og þjálfun starfsmanna sinna.


Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina