Heimsóknir í álverið
Frá upphafi hafa um 11 þúsund gestir heimsótt álver Alcoa Fjarðaáls. Gestakomur eru algengastar yfir sumartímann og í sumar bjóðum við daglega upp á kynningu á starfsemi fyrirtækisins. Kynningin fer fram í aðalbyggingu álversins klukkan 14:00. Þar er farið yfir sögu fyrirtækisins og uppbyggingu. Einnig er því lýst hvernig ál er framleitt og hvaða áhrif álverið á Reyðarfirði hefur haft á samfélagið. Að því búnu er gestum boðið í ökuferð um álverssvæðið.
Þeim gestum, einstaklingum og hópum, sem hafa áhuga á að fara inn í álverið sjálft, er bent á að hringja í síma 470 -7700 eða senda póst á netfangið fjardaal@alcoa.com. Það er heilmikið fyrirtæki að fara út í álverið og þær ferðir þarf að skipuleggja fyrirfram. Farið er með leiðsögumanni sem sér um að ítrasta öryggis sé gætt, en öryggismál hafa algeran forgang hjá fyrirtækinu.
Gestir fá viðeigandi öryggisfatnað, skó og fleira, áður en haldið er út í verksmiðjuna. Þeim eru einnig kynntar öryggisreglurnar sem gilda á svæðinu, en þeim verða allir að fylgja.
Álver Fjarðaáls stendur um 5 km austan við bæinn Reyðarfjörð, þ.e. við veginn sem liggur frá Reyðarfirði til Eskifjarðar. Áður en komið er að álverinu er vegur sem liggur niður að Mjóeyrarhöfn, en hann tengist ekki álverslóðinni. Ekið er fram hjá álverinu þar til komið er að vel merktum afleggjara niður að sjó. Þar eru stæði fyrir bifreiðar og rútur.
Vinsamlegast farið inn um aðalinngang (á stóru byggingunni við bílastæðið).