Alcoa á Íslandi
Innkaupaaðferðir 
Rafrænt uppboð
Rafræn innkaup
Lokað útboð
Innkaupaaðferð C: Lokað útboð

Alcoa Fjarðaál kemur sér upp lista með mögulegum og viðurkenndum þjónustuaðilum.
 
Þegar þörf er fyrir ákveðna þjónustu eða vöru, velur fyrirtækið hæfa aðila og sendir hverjum og einum tölvupóst með viðeigandi útboðsgögnum, ásamt tilkynningu um heimsókn til hans á tilteknum tíma.
 
Við heimsókn er verkið útskýrt og spurningum svarað.
 
Þjónustuaðili eða birgir sendir síðan inn tilboðsgögn með tölvupósti innan tilgreinds tíma. Alcoa Fjarðaál fer yfir öll tilboðsgögn og metur þau út frá fyrirframgefnum skilyrðum sem kynnt hafa verið í útboðsgögnum.
 
Haft er samband við þann bjóðanda sem valinn er og gengið frá samningi.
 
Þegar samningur er frágenginn og áður en framkvæmd hefst skilar þjónustuaðili inn áætlunum um það hvernig hann muni standa að öryggismálum, heilsuvernd og umhverfisvernd.
 
Alcoa vaktar að áætlun og árangur standist í framkvæmd og leitar leiða til úrbóta ef þörf er á og hægt er.  Ef ekki, getur það verið tilefni uppsagnar samningsins.
 
Fyrirvarar
Áform um útboð á þjónustu miðast við núgildandi áætlanir fyrirtækisins sem geta tekið breytingum. Alcoa Fjarðaál áskilur sér rétt til að falla frá áformum um útboð á þjónustu, breyta skilgreiningu verkefna, innkaupaaðferðum, viðmiðum við val tilboða og tímasetningum.

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina