 |
 |
|
 |
 |
 |
 |
Innkaupaaðferð B: Rafræn innkaup
Rafræn innkaup er aðferð sem notuð er í þeim tilvikum þegar keyptar eru ýmsar vörur og aðföng sem þarf að endurnýja reglulega á sem fyrirhafnarminnstan hátt. Á sama hátt og í lið A koma aðeins þau fyrirtæki til greina sem hafa hlotið viðurkenningu hjá Alcoa Fjarðaáli sem mögulegir birgjar (sjá kröfur til bjóðenda) Búin er til eins konar vísitala sem höfð er til viðmiðunar við val tilboða og byggist á 100 mismunandi vörutegundum. Bjóðendur senda inn „pakkatilboð“ og fá tækifæri til að kynna það fyrir Alcoa Fjarðaáli. Áhugasamir aðilar sem búa yfir rafrænum innkaupalistum senda tilboð til Alcoa, kynna vöruúrvalið og tæknilegan grunn innkaupakerfisins Alcoa Fjarðaál staðfestir að innkaupakerfi mögulegs birgja geti tengst innri kerfum Alcoa Fjarðaáls. Tilboð eru metin og gengið er frá samningum við valinn þjónustuaðila. Viðeigandi starfsmenn hjá Alcoa fá aðgengi að innkaupakerfinu og panta nauðsynlega hluti eftir þörfum. Fyrirvarar Áform um útboð á þjónustu miðast við núgildandi áætlanir fyrirtækisins sem geta tekið breytingum. Alcoa Fjarðaál áskilur sér rétt til að falla frá áformum um útboð á þjónustu, breyta skilgreiningu verkefna, innkaupaaðferðum, viðmiðum við val tilboða og tímasetningum.
|
 |
|
|
 |