alcoa.com

Alcoa á Íslandi
 
Stuðningssjóður Alcoa

Samfélagsábyrgð er mikilvægur þáttur í þeim gildum sem eru undirstaða fyrirtækisins.  Fyrirtækið og áhrif af starfsemi þess snertir líf þúsunda einstaklinga um heiminn á hverjum degi, starfsmanna, viðskiptavina, birgja og samstarfsaðila. 
 
Framtíð Alcoa Fjarðaáls er samofin framtíð samfélagsins.  Alcoa Fjarðaál getur stuðlað að jákvæðri þróun þess samfélags á ýmsan hátt, meðal annars fyrir tilstuðlan Stuðningssjóðs Alcoa.  Stuðningssjóðurinn hefur þann tilgang að auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem búa í  þeim samfélögum sem dótturfyrirtæki Alcoa starfa í.  Sjóðurinn var stofnaður árið 1952 og hefur síðan lagt um 25 milljarða króna í ýmis samfélagsverkefni um heiminn.
 
Árið 2007, þegar starfsemi Alcoa Fjarðaáls er hafin, mun fyrirtækið styðja umsóknir samfélagsverkefna í Stuðningssjóð Alcoa.  Verkefni þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að geta notið stuðnings úr sjóðnum.  Jafnframt þarf að fylgja ákveðnu umsóknarferli þegar leitast er við að fá stuðning sjóðsins.  Nærsamfélag fyrirtækisins nýtur forgangs við ákvörðun um stuðning við verkefni.

Til ársins 2007 getur Alcoa Fjarðaál sótt stuðning í Stuðningssjóð Alcoa fyrir ákveðin verkefni sem stuðla að uppbyggingu og þróun innviða og grunnþjónustu á nærsvæði fyrirtækisins.  Alcoa Fjarðaál á í öllum tilfellum frumkvæði að þessum verkefnum.  Meðal þeirra verkefna sem hafa notið stuðnings eru tækjakaup fyrir Heilbrigðisstofnun Austurlands.
 
Alcoa Fjarðaál veitir einnig beinan stuðning til samfélagsverkefna í nærsamfélagi álversins.  Árin 2005 og 2006 njóta þau verkefni forgangs sem stuðla að uppbyggingu og sjálfbærri þróun samfélagsins á Austurlandi, tengt:
 
  • umhverfismálum og náttúruvernd
  • öryggi og heilbrigði einstaklinga og samfélagsins
  • þróun stuðningsþjónustu og innviða samfélagsins
  • fólksfjölgun og eflingu vinnumarkaðarins
  • tækifærum til tómstunda- og félagsstarfs
 
Stuðningurinn er einungis veittur góðgerðasamtökum.  Ekki er veittur stuðningur til einstaklinga eða til almenns reksturs félaga.  Þeir sem hafa í huga að fara fram á stuðning við verkefni eru vinsamlega beðnir um að senda skriflega beiðni til Alcoa Fjarðaáls þar sem eftirfarandi upplýsingar koma fram:  Nafn félags sem fer fram á stuðning, kennitala félagsins, heimilisfang félagsins, nafn, sími og netfang tengiliðar, lýsing á verkefninu og hvernig það tengist einu eða fleiru af fyrrgreindum forgangsmálum, áætlaður heildar kostnaður við verkefnið og upphæð stuðnings sem farið er fram á að Alcoa Fjarðaál veiti.
 
Meðal þeirra fjölbreyttu verkefna sem Alcoa Fjarðaál hefur stutt eru:
 
  • Neistaflug
  • Þjóðahátíð Austfirðinga
  • Dagar myrkurs
  • Óperuhúsið
  • Umferðafræðsla fyrir börn í Fjarðabyggð
  • Loftslagsverkefni Landverndar
  • Starfsþjálfunarferð fyrir tvo lögreglumenn frá Fjarðabyggð 
  • Átaksverkefni um fjölmenningu
  • Þróun námsbrautar og kennslustuðningur við Verkmenntaskóla Austurlands
  • Skíðalandsmót Íslands
  • Jazzhátíð Egilsstaða
  • Þátttaka grunnskólanema á Reyðarfirði í erlendri umhverfisráðstefnu
  • Sjómannadagsskemmtun í Fjarðabyggð
 
Einnig gaf Alcoa Fjarðaál Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað, í gegnum Stuðningssjóð Alcoa, búnað til að gera röntgenmyndatökur stafrænar, og stofnaði Æskulýðs- og íþróttasjóðinn Sprett með Ungmenna og íþróttasambandi Austurlands.




Dæmi: Styrktarsjóðurinn Sprettur


Nýr styrktarsjóður, Sprettur, var stofnaður 16. júní 2005, við undirritun samstarfssamnings milli Ungmenna og íþróttasambands Austurlands (UÍA) og Alcoa Fjarðaáls með það að markmiði að efla ungmenna- og íþróttastarf á Austurlandi.
skoða frétt

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina