Umsóknarferli (frá 2006)
Umsóknarfrestur í Stuðningssjóð Alcoa er einu sinni á ári fyrir úthlutanir komandi árs. Umsóknarfresturinn verður auglýstur hér á heimasíðunni þegar Alcoa Fjarðaál getur stutt umsóknir í sjóðinn, en það verður í lok ársins 2006 fyrir úthlutanir ársins 2007. Leiðbeinandi umsóknarferli:
- Sendu Alcoa Fjarðaáli einnar blaðsíðu lýsingu á verkefninu, þar sem fram kemur um hvað verkefið snýst, hver stýrir verkefninu og hvernig það tengist málaflokki sem Stuðningssjóðurinn hefur skilgreint að verkefni þurfi að falla að.
- Alcoa Fjarðaál fer yfir lýsinguna og ef fyrirtækið álítur verkefnið falla að skilyrðum Stuðningssjóðsins og vera forgangsmál samkvæmt þeim skilgreiningum sem Alcoa Fjarðaál hefur sett, verður beðið um ýtarlegri umsóknargögn (sjá Grant Proposal Template).
- Ýtarlegri umsóknargögn eru fyllt út á rafrænan hátt og send Alcoa Fjarðaáli. Einnig er fyllt út viðeigandi „affidavite" skjal (fyrir verkefni tengd fræðslu eða ekki tengd fræðslu).
- Ýtarlegri umsóknargögn þurfa að vera á ensku. Þeir sem ekki treysta sér til að veita upplýsingar á ensku geta fengið tungumála aðstoð hjá Alcoa Fjarðaáli.
- Alcoa Fjarðaál fer yfir gögnin, staðfestir stuðning sinn og sendir þau áfram til stjórnar Stuðningssjóðs Alcoa til umfjöllunar.
- Alcoa Fjarðaál lætur umsækjendur vita um niðurstöðu umfjöllunar hjá stjórn sjóðsins og afhendir stuðningsfjármagnið ef umsókn hefur fengið jákvæða umfjöllun.
- Umsækjendur þurfa að skila inn skýrslu um notkun fjármagnsins. Um sitt hvora skýrsluna er að ræða eftir því hvort stuðningsfjármagnið er undir 20.000 USD eða yfir 20.000 USD.
|
 |
Fréttasíða

 Á fréttasíðu Stuðningssjóðs Alcoa má sjá dæmi um ýmiss konar verkefni sem sjóðurinn hefur styrkt.
fara á fréttasíðu
|
 |