alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Skráning birgja 
Hafi þitt fyrirtæki áhuga á því að bjóða Alcoa Fjarðaáli vöru eða þjónustu er hægt að skrá upplýsingar um það hér fyrir neðan. Þegar umbeðnir liðir hafa verið fylltir út, vinsamlegast ýtið á†Senda‮

Eftir að skráningin hefur verið send til okkar færðu innan skamms tölvupóst til staðfestingar á móttöku. Alcoa Fjarðaál skráir viðkomandi fyrirtæki á lista yfir hugsanlega birgja.

Þegar kemur að útboði á þeirri tegund vöru eða þjónustu sem þitt fyrirtæki hefur upp á bjóða, verða sendar með tölvupósti nánari upplýsingar um magn og tegund þjónustu.

Hafi þitt fyrirtæki áhuga á viðkomandi „pakka“ varðandi vörukaup eða þjónustu, er þér boðið að fylla út eyðublað á Netinu þar sem spurt er um nánari upplýsingar varðandi fyrirtækið, starfsmannafjölda, árangur í öryggis-, umhverfis- og heilsumálum, vottun (t.d. ISO), o.fl.

Farið verður vandlega í gegnum þær upplýsingar sem sendar eru inn og viss fyrirtæki valin eftir þeim kröfum sem Alcoa Fjarðaál hefur sett sér varðandi birgja. Að þessu ferli loknu er þeim fyrirtækjum sem standast allar kröfurnar send tilkynning um að fyrirtækið hafi hlotið viðurkenningu Alcoa sem†Mögulegur birg⁩.

Viðurkenndum birgjum er síðan boðið að senda inn tilboð samkvæmt einni af þremur innkaupaaðferðum Alcoa Fjarðaáls.

Vinsamlegast athugið: Áform um útboð á þjónustu miðast við núgildandi áætlanir fyrirtækisins sem geta tekið breytingum. Alcoa Fjarðaál áskilur sér rétt til að falla frá áformum um útboð á þjónustu, breyta skilgreiningu verkefna, innkaupaaðferðum, viðmiðum við val tilboða og tímasetningum.

Taktu fram númer þjónustupakka sem fyrirtæki þitt hefur áhuga á að bjóða (sjá skilgreiningu hér). Ef um vörur er að ræða, vinsamlegast skráið einfaldan vöruflokk, t.d. rekstrarvörur, skrifstofuvörur, verkfæri, o.s.frv., eða í mesta lagi 5 vöruliði.

Fylla verður út þá reiti sem merktir eru með stjörnu.

*Fullt nafn tengiliðs hjá fyrirtækinu

*Tölvupóstfang tengiliðs hjá fyrirtækinu

*Símanúmer tengiliðs hjá fyrirtækinu

*Nafn fyrirtækis

Kennitala fyrirtækis

*Heimilisfang

*Póstnúmer

*Sveitarfélag

Símanúmer

Fax

Heimasíða

Númer þjónustupakka (notið kommu á milli ef fleiri en einn).

Og/eða vörur í boði (ath. ekki fleiri en 5 liði)


*Hakaðu í reitinn til að samþykkja samkomulag okkar um friðhelgi
Með því að senda þessa beiðni samþykki ég hér með tilfærslu persónulegra upplýsinga, sem gefnar voru hér að ofan, til Alcoa Inc. og allra aðila undir þeirra stjórn í Bandaríkjum Norður-Ameríku og annars staðar (Alcoa) og vinnslu slíkra gagna í þeim tilgangi að svara beiðni minni. Alcoa mun nota veittar upplýsingar í þeim eina tilgangi að svara beiðninni og mun geyma upplýsingarnar eins lengi og ýtrasta nauðsyn krefur til að geta lokið beiðninni. Ég staðfesti að ég hef verið að fullu upplýst(ur) um ástæðurnar fyrir vinnslu og tilfærslu persónulegra upplýsinga um mig og ég geri mér grein fyrir öllum réttindum mínum varðandi slíkar persónulegar upplýsingar og öll viðeigandi lög. Ef ég ákveð á einhverjum tímapunkti hér eftir að ég vilji draga samþykki mitt til baka, sem gefið var hér að ofan, mun ég hafa samband við Alcoa til að upplýsa um þessa ákvörðun. Ég á einnig rétt á að láta leiðrétta allar rangar upplýsingar sem geymdar eru hjá Alcoa.

*Merkir að eitthvað vanti.
Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina