Við trúum að árangur okkar sé tengdur heilsu og velferð þeirra hundruða samfélaga um allan heim sem hýsa Alcoa verksmiðjur og skrifstofur. Þessi samfélög hafa alltaf verið í brennidepli hvað varðar gjafir Alcoa, bæði gegnum Alcoa Inc. og gegnum Alcoa Foundation, sem er stofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni.
Af því að þessir staðir og fólkið sem þar býr eru okkur svo mikilvæg, kappkostum við að auðga þau með styrkjum, hugmyndum, tíma okkar og viðleitni. Til viðbótar við starfsemi grundvallaða á styrkjum hafa tvö alþjóðleg verkefni verið þróuð til að viðurkenna sjálfboðaviðleitni starfsmanna Alcoa gegnum sérstaka Alcoa styrki. ACTION (Alcoans Coming Together In Our Neighborhoods) hvetur Alcoa-fólk til að vinna sem heild til að hjálpa stofnunum á staðnum sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni, á meðan Bravo! viðurkennir sjálfboðaliðaviðleitni einstakra starfsmanna. Starfsmenn Alcoa allsstaðar taka þátt í þessum verkefnum til að koma til góða þeim stofnunum sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni í þeirra samfélögum.
|
 |
Alcoa Foundation

 Alcoa Foundation hefur síðan 1952 verið að búa til samfélagsmiðaða styrki í Alcoa samfélögum um allan heim, og fyrir stofnanir á staðnum, í landinu og alþjóðlegar stofnanir. Fræðstu um meira á heimssamfélagssíðu Alcoa.
go
|
 |