alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Framtíðarsýn og gildi Alcoa 
Framtíðarsýn og gildi Alcoa
Siðareglur Alcoa
Mannréttindi
Mannréttindi
Alcoa er alþjóðlegt fyrirtæki sem er í viðskiptum á mörgum smáum heimamörkuðum. Til að viðskipti okkar séu sem farsælust fyrir alla, treystum við því að allir starfsmenn Alcoa tileinki sér Siðareglur Alcoa og þau gildi sem fyrirtækið metur mest.

Gildi Alcoa tryggja farsæld starfsmanna fyrirtækisins, fjárfesta þess og þeirra samfélaga sem Alcoa starfar í - þau mynda ramma utan um ákvarðanir okkar, gjörðir og framkomu. Okkar gildi eru alþjóðlegur samskiptamáti sem yfirstígur fjarlægðir, menningarheima og tungumál. Með því að hafa þau í hávegum gerum við gríðarlegar kröfur til okkar sjálfra um gott viðskiptasiðferði á öllum stöðum sem við störfum á í heiminum. Grundvöllur gildanna er virðing fyrir náunganum sem við teljum að sé uppistaðan í velgengni Alcoa.

Börn og ungir starfsmenn
Hjá Alcoa starfa ekki börn og fyrirtækið er mótfallið barnaþrælkun. Fyrirtækið styður hins vegar að ungu fólki sé boðin starfsþjálfun sem er tengd hefðbundnu námi.

Starfsfrelsi
Við teljum að fólk eigi að vinna sjálfviljugt eða til að sjá sér og sínum farborða - ekki vegna þess að það er neytt til starfa. Alcoa heimilar ekki notkun notkun þræla eða starfskrafta frá fangelsum; þeirra sem neyddir eru til þess að vinna.

Jafnrétti
Margbreytileiki starfsfólks okkar og mismunandi menningarheimar sem það er sprottið úr er nokkuð sem við fögnum. Á starfsstöðum Alcoa er fólk verðlaunað fyrir framlög sín og hæfileika. Mismunun eða áreiti - í hvaða formi sem það kann að finnast - líðst ekki.

Kaup og kjör
Við tryggjum að kaup og kjör séu í samræmi við eða skari fram úr lágmarkslaunum á hverjum stað fyrir sig. Við bjóðum samkeppnishæf laun. Hugmyndafræði okkar er varðar kaup og kjör er nokkuð sem starfsmenn okkar eru fyllilega upplýstir um og ávallt innan ramma laganna.

Félagafrelsi
Við virðum rétt starfsmanna okkar til þess að ganga í félagasamtök eða hafna þátttöku í þeim.

Samband okkar við frumbyggja
Við virðum menningu, siði og verðmætamat einstaklinga og hópa í þeim samfélögum sem við störfum í. Við tökum ávallt tillit til þarfa þeirra, áhyggna og framtíðarmarkmiða.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina